þriðjudagur, mars 15, 2005
Síðustu dagar
Það hefur verið mikið um að vera undanfarið. Á föstudag var matarboð í kjalarlandinu en Naysaa var á landinu svo að öllum var hóað saman. Feikna fjör og ædolgláp og að sjálfsögðu góður matur. Á laugardaginn fór ég á Pilobolus sem var alveg hreint ótrúlega skemmtilegt. Ég sat uppi í stúkunni og sá barasta mjög vel, sérstaklega þar sem Anna sniðuga stakk upp á því að við tækjum kíki með okkur. Var sem sagt heppnari en margir sem löbbuðu bara út af því þeir sáu ekkert. Á sunnudaginn átti ég svo að sjálfsögðu afmæli, barasta orðin 25 ára. Fékk nokkra gesti í kaffiboð sem var alveg ljómandi fínt. Í gær var voru svo fundarstörf í Survivor-klúbbnum. Og þannig er nú það!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli