laugardagur, mars 05, 2005

Laugardagur

Ég er sko aldeilis búin að afkasta miklu þennan laugardaginn. Vaknaði snemma og hitti svo hópinn sem ég er að vinna verkefni með fyrir skólann. Það gekk alveg ljómandi vel en það er enn talsvert eftir svo við þurfum að halda áfram á þriðjudagskvöldið. Þegar hópvinnan var búin sótti Andri mig og við brunuðum í Ikea og tókum fram úr Önnu og Herði á leiðinni. Keyptum fatahengi og sprittkerti í Ikea, skoðuðum svo gardínur og ljós þar og í Rúmfatalagernum, fórum í Skátabúðina, tvær Hagkaupsverslanir, Krónuna og á vídjóleigu. Þegar heim kom fór ég að færa til húsgögn sem leiddi í ljós ógrynnin öll af ryki svo það endaði með því að við Andri hlupum um alla íbúð með ryksugu og tusku í svona tíu mínútur en þá nenntum við ekki meir. Svo er Hrönn á leiðinni í heimsókn til okkar núna og í kvöld ætla ég að prófa nýja uppskrift af kjúklingarétti. Held ég láti þetta gott heita í upptalningu og kveð að sinni.

Engin ummæli: