fimmtudagur, mars 17, 2005

Veðurblogg ... ???

Það er nú aldeilis ofuráhersla sem ég hef ætlað að leggja á þessa atburði sem ég taldi upp í síðasta bloggi. Vona nú að þið hafið alveg ábyggilega náð þessu þegar þið lásuð í þriðja skiptið. Ef ekki látið mig þá vita og ég skal birta þetta aftur í það fjórða.
Var annars að spá í að blogga um veðrið en fattaði svo að það er alveg í lagi að tala um veðrið en maður á kannski ekkert að vera að blogga um veðrið. Ef maður hefur ekkert betra að blogga um en veðrið þá á maður bara að sleppa því. Ekki það að ég hafi yfirhöfuð eitthvað merkilegt að segja hérna en einhvers staðar verður maður að draga mörkin. Eða hvað?

Engin ummæli: