fimmtudagur, apríl 21, 2005

Gleðilegt sumar

Jæja þá er sumarið bara brostið á í öllu sínu veldi. Og barasta hið fínasta veður í ofanálag. Ekki það að ég hafi notið þess, er búin að sitja inni og læra í allan dag. Á að flytja smá kynningu í skólanum á morgun á lokaverkefni í kúrsinum sem ég er í. Er að skrifa um Mörthu Graham sem er nú barasta mjög áhugavert.
Finnst hálfmerkilegt hvað maður verður svangur við það að sitja heima hjá sér og læra. Er búin að narta stanslaust í dag og sennilega búin með margfaldan dagsskammt af öllu mögulegu. Svo er taco í kjaló á eftir - átið heldur áfram. Kannski er þetta bara mín leið til að fagna sumri.
Svo var rosa hasar í götunni minni í gærkvöldið. Andri var niðri á slökkvistöð að setja eitthvað talstöðvardót í bíl fyrir einn félaga sinn þegar hann heyrir kallað út vegna eldsvoða í Álfholti. Hann hringdi strax heim til að athuga hvort ég hefði nokkuð gleymt að slökkva á grillinuj en það var allt í lagi með mig. Sá ekki einu sinni neinn eld, hvorki út um gluggann né af svölunum. Hljóp svo stöðugt á milli gluggans norðan megin og svalann sunnan megin til að sjá hvert slökkviliðið færi en hef sennilega verið á hlaupum akkúrat þegar það kom því ég sá bílana bara fara. Þetta var víst bara eitthvað minniháttar sem betur fer. Komst hins vegar að því að þrátt fyrir stórgott útsýni úr íbúðinni er það alveg afleitt yfir götuna. Sé bara nokkur hús og svo eru öll hin bara í felum bakvið þau hús.

Engin ummæli: