mánudagur, apríl 04, 2005
Nýir gönguskór
Merkilegt hvað helgarnar líða alltaf fljótt. Sérstaklega þær sem ég er ekki að vinna. Ég fékk nýja gönguskó um þessa helgi reyndar. Andri gaf mér þá í afmælisgjöf en við vorum aldrei búin að finna réttu skóna. Þessir eru rosa fínir, úr leðri og með veltisóla og svæðanuddsinnleggjum. Prófaði þá aðeins í gærkvöldi en bara innanbæjar. Löbbuðum úr Álfholtinu í Álfaskeið og til baka. Skórnir reyndust bara mjög vel en við villtumst næstum því í myrkrinu á leiðinni heim. Ljósastaurarnir voru einhvern veginn ekki á því að fara í gang fyrr en við vorum svo gott sem komin heim en samt var orðið mjög dimmt úti. Merkilegt ekki satt!?
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
he he...
Ég hélt alltaf að ljósastórarnir væru með svona skynjara þannig að þegar það fer að dimma þá kveiknar ljós og svo slökknar þegar það er orðið nógu bjart... kannski er einhver sem starfar bak við tjöldin (ein og í spaugstofunni) og kveikir og slekkur á þeim
Skrifa ummæli