föstudagur, apríl 22, 2005
Að tala sig hása
Ég er búin að tala svo mikið í dag að röddin mín er farin að bresta. Byrjaði daginn í skólanum og flutti kynninguna mína. Það gekk alveg ágætlega en ég varð pínu stressuð á tíma af því mér fannst ég þurfa að koma svo miklu frá mér á skömmum tíma að ég endaði á því að buna þessu öllu út úr mér eins hratt og ég gat. Held það hafi nú samt verið skárra en mér fannst þegar ég var nýbúin. Svo í vinnunni er síminn búinn að hringja látlaust. Við vorum að auglýsa eftir fólki til starfa og það eru nokkrir búnir að spyrjast fyrir um það. Ég hef svona voðalega mikið að segja um þessi störf þegar fólk spyr svo að ég hef varla þagnað í dag en finn það núna að röddin er orðin pínu þreytt. Greinilega ekki alveg laus við kvefið heldur. Jæja, hringir síminn. Best að halda áfram að blaðra.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Æ, æ. Ég kannast virkilega vel við þetta vandamál. Það eina sem gagnast er góð hóstasaft eða matskeið af hot´n´sweet á dag. Og svo er líka gott að borða heita súpu.
Skrifa ummæli