föstudagur, apríl 15, 2005
Leiðindi
Ég verða að viðurkenna það að mér leiðist stórkostlega. Ætlaði að drífa mig af stað í morgun í vinnu og skóla en náði ekki lengra en í sturtuna áður en ég sá að það var lítið vit í að fara út. Dagurinn í dag er líka búinn að vera verri en hinir tveir veikindadagarnir, svona hausverkjalega séð, gat varla lyft höfðinu frá koddanum. Það var þó huggun harmi gegn að Andri var heima í dag en ég hafði varla séð hann síðan á þriðjudag. En núna er hann farinn í vinnuna og ég farin að hressast talsvert og komin fram úr en algjörlega að deyja úr leiðindum. Og sjónvarpsdagskráin í kvöld jafn frábær og öll föstudagskvöld. Á RÚV er boðið upp á stælingu á Gosa og á SkjáEinum Djúpu laugina og Ungfrú Reykjavík. Ég veit eiginlega ekki hvað af þessu hljómar leiðinlegast.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Þú getur náttúrulega alltaf bloggað. Þá minnka leiðindin, jafnvel annarra leiðindi í leiðinni.
Skrifa ummæli