... þessa helgi eins og til stóð. Þegar ég horfði út um gluggann minn á rigninguna á laugardaginn var ég mjög fegin. Sé ekki skemmtunina í því að sitja úti í rigningunni og gera tilraunir með það hvað gore texið þolir mikið vatn áður en það fer að leka í gegn.
Við skötuhjúin tókum þess í stað góðan slurk í þvottahúsinu og létum nýja, fína, rakastýrða þéttiþurrkarann sanna að hann hefði verið góð fjárfesting. Fengum svo Hafnfirðinga í heimsókn á laugardagskvöldið og héldum upp á ekki-útilegu, brunuðum austur í gær og til baka aftur og þá fékk Ragnheiður ný og fín bleik gleraugu. Og þannig var nú helgin mín!
mánudagur, júní 27, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Og í kvöld færðu nýveiddan silung hjá mömmu. Hljómar eins og lífið sé bara nokkuð gott hjá þér núna ;)
Skrifa ummæli