
Alltaf þegar ég borða spergilkál fæ ég alveg heiftarlega magaverki. Stundum gleymi ég því en stundum tek ég þá gáfulegu ákvörðun að athuga hvort að mér verði ennþá illt af spergilkáli ... aldrei að vita, ég gæti verið vaxin upp úr þessu!? Í dag var einn af þessum gáfulegu dögum. Mér var skammtaður ágætis skammtur af spergilkáli í mötuneytinu og ég ákvað að prófa að borða hann til sjá hvað myndi gerast. Niðurstaðan: Ég er að farast úr verkjum akkúrat núna. Góðu fréttirnar eru þær að af fenginni reynslu veit ég að þetta gengur yfir á svona 1-2 klst. og á meðan get ég æft mig í jógaöndun og slakað á inn í verkina.
2 ummæli:
Svona magakveisur eru einmitt lífsnauðsynlegar til að æfa sig fyrir hríðarnar. Það ætti eiginlega að vera skylda að fá í magann á meðgöngunni til að geta æft sig í jógaöndun og slökun til að vinna sig í gegnum verkinn. Þannig að kannski var þetta bara gáfulegt hjá þér eftir allt saman að borða spergilkálið.
Held ég reyni nú samt að stilla svona "æfingum" í hóf í nánustu framtíð.
Skrifa ummæli