föstudagur, júní 03, 2005

Tannkremið er búið

Mér finnst mjög merkilegt hvernig mér tekst alltaf að gleyma einhverju einu þegar ég fer að versla fyrir heimilið. Hef þennan hæfileika sennilega frá föður mínum sem passar sig á því að kaupa alltaf eitthvað aukalega (yfirleitt reyndar súkkulaði) til að bæta upp fyrir þennan eina hlut sem hann er viss um að hann er að gleyma. Ég geri það nú reyndar ekki, enda hef ég ekki fundið út úr því hvernig súkkulaði á að koma í staðinn fyrir t.d. álpappír. Ja ... nema súkkulaðið sé pakkað inn í álpappír, þá væri kannski hægt að borða súkkulaðið og nota álpappírinn.
En hvað um það … um daginn var það sem sagt álpappír sem ég gat ekki munað eftir að kaupa. Margar vikur í röð gleymdist alltaf álpappírinn. Núna er það hins vegar tannkrem. Reyndar eru ekki liðnar margar vikur, en það er svona rúm vika síðan ég áttaði mig á því að tannkremið færi að verða búið og það væri kominn tími á nýja túpu. Núna er túpan eins tóm og tannkremstúpa getur verið og búið að kreista hana á allan mögulegan hátt. Það er því eins gott að ég muni eftir því að kaupa tannkrem á leiðinni heim á eftir því ég er nokkuð viss um að súkkulaði geti á engan hátt komið í staðinn fyrir það. Og því er pabbi ábyggilega sammála.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Oh ég veit alveg hvað þú átt við...hjá mér er þetta yfirleitt tómatsósa sem er samt að verða þannig að ég kaupa ALLTAF tómatsósu og því núna birgðir fyrir margar vikur......mér finnst tómatsósa nefninlega svo góð.
Anna

hdb sagði...

Ég á eitt gott ráð - lendi nebbilega oft í þessu með tannkremið. Ég kaupi alltaf nokkrar túpur í einu, a.m.k. þrjár og svo á ég tengdaföður sem hefur það fyrir sið að kaupa stórar tannkremstúpur þegar hann fer til Bandaríkjanna og gefur þær syni sínum sem tákn um væntumþykju sína. Þetta eru yfirleitt túpur fullar af voða vondu tannkremi sem þó er hægt að notast við í hallæri. Það er því alveg spurning um að kaupa svona vont tannkrem í næstu búðarferð sem hægt er að nota þegar næst gleymist að kaupa tannkrem.
Annars hef ég líka erft þennan hæfileika frá honum föður okkar og reyni því að gera eins og mamma - skrifa niður allt sem vantar og fara svo út í búð. Strika svo út jafnóðum og sett er í körfuna - ofurskipulag.

Ragnheidur sagði...

Já, ég hef nefnilega erft fjölmennisfælni (ef að það er orð) frá henni móður okkar og panika þess vegna um leið og ég er komin inn í Bónus eða aðrar álíka verslanir og þá held ég á innkaupalistanum sem ég skrifaði samviskusamlega og kreisti hann í lófanum en gleymi að líta á hann þangað til ég er komin heim aftur og takið á miðanum slaknar. En það er alveg spurning um að birgja sig upp af tannkremi - ekki gaman þegar ekkert er til.