miðvikudagur, september 21, 2005

Gallup að hringja

Ég var að skoða símann minn í gær og sá að ég hafði ekki svarað sex hringingum sem allar voru frá Gallup um helgina. Það var sem sagt hringt þrisvar í mig frá Gallup Reykjavík og þrisvar frá Gallup Akureyri. Og þetta var bara í farsímann svo það má alveg gera ráð fyrir sex símtölum í heimasímann líka. Í fjórða skiptið sem Gallup Reykjavík hringdi svaraði ég, svo að þeim hefur vonandi liðið betur að heyra að allt þetta stress til að minna mig á að póstleggja fjölmiðlakönnunina var óþarft þar sem ég var löngu búin að senda hana.

Engin ummæli: