mánudagur, september 12, 2005

Græddi klukkutíma

Eftir því sem lengra líður á meðgönguna því fyrr þarf ég að fara að sofa á kvöldin og því erfiðara verður að vakna á morgnana. Þó ég vaki ekki fyrir tvo gæti ég alveg sofið fyrir tvo - svona ef ég gæfi mér tímann til þess og þyrfti ekki að mæta í vinnu og svona. Núna í kvöld er ég búin að vera að vinna aðeins í tölvunni og varð litið á klukkuna hér neðst í hægra horninu og sá að hún var hálfellefu - og ég ennþá vakandi og ekkert svakalega syfjuð einu sinni! Kveikti svo á sjónvarpinu og þegar dagskráin virtist vera laaangt á eftir áætlun - á öllum sjónvarpsstöðvum - datt mér í hug að líta á aðra klukku. Júbb ... klukkan í tölvunni var klukkutíma á undan. Tók mig samt alveg dágóðan tíma að fatta það.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ohh hvað ég kannast vel við þessa svefnsýki, gæti alveg sofið heillengi ef ég þyrfti ekki alltaf að vera að mæta í vinnu =)Finnst ég vera nýsofnuð þegar helv.... vekjaraklukkan hringir.