þriðjudagur, september 06, 2005

Tuð

Fór á eina skemmtilegustu skrifstofu landsins í hádeginu: nemendaskrá HÍ. Líf og fjör þar eins og við er að búast af árstímanum. Þegar ég bað um vottorð um námsframvindu mína á árinu 2003 var ég spurð hvað ég ætlaði að gera við það. Ég svaraði því sannleikanum samkvæmt en gætti þess að hafa tón í röddinni sem gaf til kynna að spyrjandanum kæmi það bara alls ekki við. Og hvers vegna er ég að tuða um þetta hérna? Ég ætti kannski frekar að segja ykkur frá myndinni af mannauðnum mínum sem birtist í Fréttablaðinu í morgun. Svipurinn myndi sóma sér vel í hvaða sápuóperu sem er. Bls. 16 fyrir þá sem vilja kíkja!

Engin ummæli: