laugardagur, september 03, 2005
Ágætis byrjun
Eins og einhverjir vita er ég að hefja nám í mannauðsstjórnun núna í haust. Skráði mig í tvö námskeið en sá svo þegar ég las námskeiðslýsingu fyrir annað þeirra að það var mjög líkt námskeiði sem ég tók í fyrravetur í félagsvísindadeild. Sendi svo fyrirspurn á kennara námskeiðsins og að öllum líkindum ætti ég að geta fengið það metið svo núna er ég að semja bréf þar sem ég sæki formlega um að fá þau námskeið sem ég tók síðasta vetur metin. Ef að ég fæ þau öll metin mætti segja að ég byrjaði í þessu námi með níu einingar - þar af þrjár fyrir skyldunámskeið. Geri aðrir betur! Ég var svo að velta því fyrir mér að finna annað námskeið til að taka í stað þess sem ég fæ hugsanlega metið en eftir samtal við mína skynsömu móður hef ég komist að því að e.t.v. væri skynsamlegast að láta eitt námskeið nægja á þessu misseri. Það er sennilega nóg svona samhliða fullri vinnu og síðasta hluta meðgöngu að ekki sé minnst á fæðinguna og fyrstu dagana sem móðir!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli