mánudagur, nóvember 21, 2005

Bogmaður

Það stefnir í að Dósóþeus verði bogmaður en ekki sporðdreki eins og fyrst var haldið. Nema hann drífi sig í heiminn fyrir miðnætti í dag, en það eru lítil merki um það enn. Annars á ég tíma hjá ljósmóður og lækni á morgun til að fara yfir stöðuna - þ.e.a.s. ef það verður ekki allt farið í gang þá. Maður má nú alltaf vona.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

22.11.05 hljómar mjög vel :)