föstudagur, nóvember 11, 2005

Slökkviliðsæfing

Slökkviliðsmaðurinn hefur verið á námskeiði um nokkurt skeið núna og hefur það þess vegna bara gott með frí öll kvöld og helgar (sem fara reyndar að mestu í að lesa og gera verkefni). Hins vegar er ekki laust við að hann sakni hasarsins úr starfinu sem má glögglega sjá á því hvernig hann mænir á eftir sjúkrabílum sem hann sér þeysa fram hjá á fleygiferð með bláu ljósin kveikt. Ég ákvað (frekar ómeðvitað reyndar) að bæta honum þetta aðeins upp í gærkvöldi þegar ég var að elda og skapa smá hasar á heimilinu. Var að hita brauð í ofninum og setti grillið á og náði að láta bökunarpappírinn rekast í grill-elementið þannig að pappírinn skíðlogaði að sjálfsögðu. Kallaði svo: "Ó, ó, Andri! Það er kviknað í!" Það var eiginlega verst hvað hann var pollrólegur á meðan hann tók ofnskúffuna og setti hana undir kranann.

2 ummæli:

hdb sagði...

Þvílík hetja!!! Maður getur rétt ímyndað sér hvað maðurinn verður rólegur þegar barnið fæðist - hann verður eins og klettur og þú átt ekki eftir að þurfa að hafa neitt fyrir þessu. Það er nú gott að vera vel (ó)giftur.

Nafnlaus sagði...

Flott hjá þér, halda manninum í æfingu :) Annars er þetta fín síða hjá þér, er farin að lesa bloggið þitt reglulega. Gangi þér vel :)