Alveg hreint merkilegt hvað manni líður alltaf vel þegar það er vel tekið til heima hjá manni. Ég hafði reyndar ekkert tekið eftir því að mér liði eitthvað illa með allt í drasli (ekki nærri eins slæmt og í sjónvarpsþáttunum þó) og bækur og blöð á víð og dreif um íbúðina. Slökkviliðsmaðurinn átti afmæli í gær og þar sem við vorum búin að bjóða nánsustu fjöldskyldu í kaffi var ekki annað hægt en að ganga frá þessum blöðum og bókum. Í gærkvöldi þegar ég var búin að ganga frá eftir gestina fattaði ég hvað það er eitthvað gott fyrir sálina að hafa hreint í kringum sig. Ekki í fyrsta skipti sem ég fæ þessa tilfinningu en virðist aldrei muna þetta fyrr en ég er búin að taka til.
En á neikvæðari nótum: það fer óskaplega í taugarnar á mér hve margir tala um flutning Sylvíu Nætur. Í eignarfalli er nafnið Nótt, Nóttar og fyrst að DV nær þessu rétt finnst mér að bæði Bylgjan og Morgunblaðið ættu að geta það líka.
mánudagur, febrúar 06, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Segir maður þá "þversnúinn afgangandi Silvíu Nóttar"? Dem, var svo nálægt því með "Silvíu Náttar". Var þó amk nær heldur en Moggin og Bylgjan ;)
Uss, hvort tveggja Nótt og Nætur ætti nú að vera í lagi þar eð nafnið er einfaldlega dregið af nafnorðinu nótt. Þar er jú eignarfallið nætur. Sama hvað mannanofn.com segir.
Það fer hins vegar óskaplega í taugarnar á mér hvað það er yfirhöfuð talað um þessa Silvíu Nótt, punktur.
Samkvæmt Nöfn Íslendinga er hvort tveggja rétt, Nætur/Nóttar. Ég fletti þessu nefnilega upp um daginn eftir að hafa heyrt fullt af fólki kvarta yfir því að nafnið væri beygt Nóttar :o)
Kolfinna
Já, já ... og eignarfallið af lækur er læks.
Skrifa ummæli