laugardagur, mars 15, 2008

California

Þá er vikudvöl í suður Californiu lokið og ég orðin árinu eldri þar að auki. Dvölin fyrir vestan var vægast sagt yndisleg og allir fjölskyldumeðlimir á því að á þessar slóðir verðum við að koma aftur fyrr eða síðar. Sól, strönd, sund, Disneyland, fallegt umhverfi, sædýrasafn, frændfólk og höfðinglega móttökur voru það sem helst einkenndu ferðina en nánari ferðasaga kemur með myndum. Á smá skammt af eldri myndum líka eftir og það er alveg næst á dagskránni hjá mér að fara yfir myndir og setja á netið.
Vildi annars þakka fyrir allar afmæliskveðjurnar sem bárust með ýmsu móti. Sem sagt: Takk. ;)

Engin ummæli: