Við fengum hreint út sagt yndislegt vorveður í dag og hitinn fór yfir 20 gráður. Í fyrsta skipti sem við mæðginin upplifum það að vera að hoppa í snjóskafli í þetta miklum hita. Annars á að kólna aftur á morgun og fara að rigna en þó hlýrra en hefur verið. Ég leyfi mér að vona að vorið sé á næsta leiti. ;)
Bloggið er líka eitthvað að lifna við hjá mér. Ég geri í það minnsta heiðarlegar tilraunir til að hafa eitthvað að segja þótt að færslurnar séu kannski bæði stuttar og "stórfréttalausar". Það eru bara algjör takmörk fyrir því hvað hægt er að hafa mörg orð um vanabundið líf sem breytist lítið frá degi til dags. Og þar með er ekki-fréttum þessa mánudags lokið.
mánudagur, mars 03, 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli