Ónefndur tveggja ára drengur var steinhissa á því að fá nammi í morgunmat áðan. Þegar mesta undrunin rann af honum var hann svo fljótur að byrja að hakka páskaeggið sitt í sig á meðan sælgætið væri enn á boðstólum fyrir hann. Korteri seinna er hann alveg ótrúlega hress með lífið og hlaupandi upp um alla veggi þrátt fyrir hrikalegt kvef og horrennsli niður á maga.
Við fengum send páskaegg frá Íslandi, tvö voru heil eftir flutningana, það þriðja gersamlega í molum. Heppilegt fyrir mig að þurfa ekki að brjóta eggið mitt sjálf ... af því það getur verið svo erfitt , eða þannig. Málhættir þessara páska féllu á þennan veg:
Paraneminn: Nær ein alda rís, þá er önnur vís.
Gormurinn: Þangað fýsir elskhugann sem unnustan er.
Ghurkan: Að kvöldi skal ósáttum eyða.
Ræðum það ekkert meira. ;)
Á döfinni í dag er svo áframhaldandi sælgætisát og páskaeggjaleit og páskamatur hjá foreldrum Erics eftir hádegið.
sunnudagur, mars 23, 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Gleðilega páska!!
Alltaf gaman að fá að fylgjast með ykkar ævintýri!
Kys og Kram; Lísa M. og co.
Skrifa ummæli