sunnudagur, mars 02, 2008

Fer að styttast

Dvöl okkar hér í Pittsburgh er heldur betur farin að styttast í annan endann. Nú er kominn mars og eftir nokkra daga förum við til L.A. í viku. Þá eru páskarnir á næsta leiti og þá er næstum því kominn apríl. 20. apríl lýkur allri kennslu hjá Andra og hann tekur lokapróf. Þá er bara maí eftir en þá þarf Andri að klára 15 sjúkrabílavaktir og svo er bara komið að útskrift. Og svo komum við heim. Sem sagt bara bráðum. Skrítið.
Ég vek svo athygli á því að icelandair býður flug til Boston á tilboði í apríl ef bókað er 3. - 6. mars. Mjög sniðugt ef einhverjir vilja kíkja í heimsókn til okkar og sjá vorið í Pittsburgh. ;)

1 ummæli:

Margrét Lára sagði...

Vá ótrúlega er tíminn fljótur að líða... bráðum fer að líða að því að við "nabbla"stelpurnar verðum allar búsettar á Íslandi aftur ;)