Dúddúrú, föstudagurinn þrettándi runninn upp!!! Dagurinn byrjaði á svarta þoku og varla hægt að sjá á milli ljósastaura þegar ég keyrði Andra í vinnuna alltof snemma í morgun. Hélt líka að geimverur hefðu komið og rænt Perlunni því ég sá hana ekki í morgun en þær eru sennilega búnar að skila henni því ég sé núna að hún er á sínum stað. Í morgun heyrði ég líka Óskar segja "já" í útvarpinu og svo kom "Óskar Þór Þráinsson, þakka þér fyrir komuna" svo ég hef ekki hugmynd um af hverju Óskar var í útvarpinu. Svo hef ég verið að skrifa marga tölvupósta sem ég ætla ekki að senda fyrr en í september þegar ég er komin úr fríinu. Dálítið skrítið að vera að skrifa bréf fram í tímann. Að öðru leyti hefur dagurinn bara verið nokkuð eðlilegur.
Í gær gerðist margt. Fyrir utan það að ég dó þrisvar sinnum úr hita í bílnum mínum (ég keyrði einhverra hluta vegna voða mikið í gær) komu Helga Dögg, Bjarni og Björgvin Haukur heim frá Mallorca, öll voða brún og sælleg og sá yngsti með þetta fína kútafar. Andri hélt hátíðlegan dótadag. Hann var að eitthvað að braska og skipti á einhverju dóti og ipod við einhvern strák og svo kom Freyr frændi frá Amríku með nýju myndavélina okkar! Nóg af tökkum fyrir Andra að fikta í um helgina semsagt. Ætla núna að fara að finna mér eitthvað í hádegismat og bið að heilsa ykkur!
föstudagur, ágúst 13, 2004
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
hjúkket að þú lifnaðir við! :) jeg er so mikket glad! þú verður svo að komast að því afhverju óskar var að segja já í úbbarpið!
mags
Haehae. Skemmtu tér vel í sólarlandinu og njóttu frísins (alveg 28 grádur á Mallorca tegar ég kíkti á fína maelinn tinn ádan)
Kolfinna
Takk fyrir það, Kolfinna. Við sjáumst svo í september ;)
Skrifa ummæli