sunnudagur, mars 20, 2005
Það er sunnudagsmorgunn ...
... og Ragnheiður vaknaði klukkan átta. Og í þetta skiptið ekki af því hún þurfti að mæta í vinnu. Ég er greinilega orðin óhæf til útsofelsis. Finnst það reyndar bara fínt. Fátt betra en að dútla sér á morgnana, lesa blöðin í rólegheitum og njóta kyrrðarinnar. Það væri auðvitað mjög gáfulegt af mér að nýta þennan tíma í að vinna eitthvað af þeim verkefnum sem ég þykist ætla að skila fyrir páska. Er bara ekki alveg komin í gírinn og þykist vera að spara kraftana þangað til Bókhlaðan opnar en þangað ætla ég að fara og rúlla þessum verkefnum upp. Bókhlaðan opnar reyndar ekki fyrr en klukkan 13 svo batteríin ættu að vera mjög vel hlaðin þegar ég mæti þangað.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Elsku Rabó mín. Er þetta ekki bara merki um að þú sért farin að eldast. Ekki orðin gömul en farin að eldast :)
Ég er greinilega ekki orðin eins gömul því ég sef alla daga til hádegis ef ég get.
Annað: mér fyndist nú í lagi að dóttir kóngsins fengi link á sig...
Hvurslags aðdróttanir eru þetta!!?? Að slengja fram slíkri kenningu án alls rökstuðnings og skrifa ekki einu sinni nafnið sitt undir!!! ;) Fussumsvei!
Og hvenær ætlar fólk svo að hætta að kalla mig Rabó???
Æ,æ ég ætlaði nú alveg að skrifa undir nafni.
Kveðja,
Anslapansla
Skrifa ummæli