Páskafríið var voða ljúft og ég get sannað það með síðuspikinu mínu. Byrjaði svo nýja vinnuviku á því að flytja mig á milli skrifborða í vinnunni. Langaði nefnilega að sitja nær glugganum svo ég gæti glápt út. Ástæðan var nú líka sú að það skrifborð er nær ofninum og mér er hætt að vera síkalt í vinnunni síðan ég færði mig.
Andri stakk mig af í morgun. Þykist vera að fara í einhverja vinnuferð á Nesjavelli. Skil ekkert í því af hverju hann þarf þá sundskýlu. Ætla þeir að fara að æfa sig í að slökkva eld í vatni? Svo kemur hann ekki heim fyrr en annað kvöld. Þetta finnst mér allt mjög grunsamlegt.
fimmtudagur, mars 31, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
he he... ætli þeir noti skýluna til að slá eldin niður ;)
Til lukku með nýja hlýja skrifborðið þitt - sjáumst á þriðjudaginn!
Skrifa ummæli