fimmtudagur, september 08, 2005

Mogginn snjall

Um daginn hringdi í mig kona frá áskriftardeild Morgunblaðsins. Ég hef nefnilega verið með helgaráskrift af blaðinu en konan vildi endilega bjóða mér að fá blaðið alla daga í einn mánuð án þess að borga fyrir meira en helgaráskriftina. Ég þáði þetta með þökkum og hef síðan horft á bunkann með blöðum á leið í endurvinnsluna stækka tvöfalt hraðar en venjulega.
Um svipað leyti og konan á áskriftardeild Mbl. hringdi fékk ég líka símtal frá Gallup þar sem afar geðþekk kona spurði mig þriggja spurninga sem ég man ekkert hverjar voru en fjórða spurningin var hvort hún mætti senda mér könnun í pósti. Ég sagði henni að hún mætti það enda finnst mér miklu skemmtilegra að krossa í reiti en að tala við ókunnugt fólk í símann. Þegar könnunin kom svo inn um lúguna í þessari viku varð mér hugsað til Morgunblaðsins. Þetta er nefnilega fjölmiðlakönnun sem tekur til lesturs dagblaða og sjónvarpsáhorfs. Tilviljun að akkúrat á þeim tíma fæ ég Moggann á hverjum degi? Nei ... ég held ekki.

3 ummæli:

hdb sagði...

Þekkt aðferð í fjölmiðlaheiminum. DV kemur ókeypis í vikunni sem fjölmiðlakönnunin er í gangi. Tímaritin geyma stjörnuviðtölin sín og stíla þau inn á fjölmiðlavikuna. Svo er keyrt á milljón í auglýsingum fyrir sjónvarpsstöðvarnar. Allt stílað inn á þessa blessuðu fjölmiðlakönnun sem er auðvitað ekkert að marka. Svona hefur þetta verið frá örófi alda.

Ragnheidur sagði...

Já, þetta er merkilegt. Maður hefði haldið að niðurstöður sem sýndu áhorf og lestur eins og hann raunverulega er myndu gagnast fjölmiðlunum betur til lengri tíma litið. En það skiptir kannski litlu máli þegar auglýsingasala er annars vegar!?

Nafnlaus sagði...

Þetta er allt saman feik!