miðvikudagur, september 15, 2004

Forsætisráðherragatan

Þá er maður heldur betur orðinn merkilegur; nágranni sjálfs forsætisráðherranns!!! Það er sko miklu merkilegra en að búa í sömu götu og utanríkisráðherrann. Fær mann næstum því til að hætta við að vilja flytja. Svo vorum við líka að taka eftir öðrum merkilegum nágranna: hestur í dulargervi hunds í næsta húsi. Stærðin kemur samt alveg upp um hann, þetta er greinilega hestur. Ég vona bara að hann borði ekki kisuna mína!

Engin ummæli: