Mætti í vinnuna áðan og tók eftir því að það var eitthvað öðruvísi á ganginum. Var samt heillengi að átta mig á því hvað það var. Allt var einhvern veginn bjartara ... það var búið að skipta um ljósaperur! Ég hafði eiginlega aldrei séð ganginn almennilega fyrr en í dag. Ótrúlegt!
Annars trúi ég því varla að það sé kominn föstudagur aftur. Og þar að auki er ekki mikið eftir af septembermánuði. Hvað verður eiginlega um dagana? Og þá sérstaklega dagana í þessari viku? Þetta hefur kannski eitthvað með það að gera hvað það er mikið að gera hjá mér. Eftir vinnu á hverjum degi fer ég heim að lesa skólabækurnar þangað til að ég sofna, vakna og fer aftur í vinnuna. Ef nefnilega að fara í próf í næstu viku! Það allra "skemmtilegasta" er að helgin verður ekkert frábrugðin virku dögunum að þessu sinni, fer að vinna báða dagana og ætli ég reyni svo ekki að lesa þegar ég kem heim. Nema á laugardagskvöldið, þá er ammli hjá Möggu. Best að hætta þessu tuði, bloggandinn virðist ekki ætla að hellast yfir mig núna, a.m.k. skemmtilega bloggandinn. Bið að heilsa.
PS. Andri er byrjaður að blogga aftur. Þar má finna afar góða samantekt yfir raftækjakaup sumarsins.
föstudagur, september 24, 2004
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli