Svaf frekar illa í nótt ... dreymdi bara skipulagsheildir og teknóstrúktúra ofan í ruslatunnu með einhverjum stefnustraum. Gat samt vaknað í rólegheitunum í morgun og hefði ég ekki verið stressuð hefði ég getað sofið aðeins lengur en venjulega. Prófið byrjaði svo kl. 9, ég tók það bara hérna í stofunni heima hjá mér í gegnum tölvuna. 30 krossaspurningar, sumum gat ég svarað léttilega en ég átti í vandræðum með nokkrar. Var svo að skila prófinu með því að ýta á takka og af því tæknin er svo yndisleg er ég strax búin að fá einkunn. Var með heil 90% rétt ... klikkaði semsagt á þremur spurningum og það voru allt spurningar sem ég var svo viss um að ég kynni. Svaraði hins vegar öllum spurningunum sem ég var ekki viss á rétt, enda velti ég þeim vel og vandlega fyrir mér. Er annars mjög glöð með níuna mína og ætla því bara að drífa mig í vinnuna.
fimmtudagur, september 30, 2004
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli