Ég er stöðugt að hripa einhverja minnispunkta niður á litla miða sem ég set svo allt í kringum tölvuna og á skrifborðið mitt. Svo man ég ekkert hvað ég er búin að gera og hvað ég á eftir og þori aldrei að henda miðunum svo það er orðið ansi ruslalegt í kringum mig. Kannski ég taki mér smá tíma í að fara í gegnum þetta og klára það sem er á miðunum og henda þeim svo ég geti byrja að safna aftur eftir helgina.
Annars er þetta nú meiri leiðindaföstudagurinn. Já, það er föstudagur og hann er leiðinlegur, þó svo að það gerist að sjálfsögðu ekki oft. Fyrir utan mígandi rigningu er ég gjörsamlega að drepast í bakinu og það er alveg sama hvernig ég stilli stólinn minn, það er allt óþægilegt. Svo fékk ég allt of lítið útborgað. Reyndar tók ég einhverja daga í launalaust leyfi í september og það er náttúrulega búið að draga það af mér. En ég átti að hækka talsvert í launum líka og samkvæmt mínum útreikningum hefur bara verið dregið af mér vegna frídaganna en launahækkunin ekki farið í gegn. Samt var ég mörgum sinnum búin að tala við launafulltrúann minn útaf þessu. En ég get samt eiginlega ekkert farið að æsa mig yfir þessu fyrr en ég skoða launaseðilinn minn, sem er ekki kominn heim til mín. Ef það rætist úr deginum kemur seðillinn með póstinum í dag. En annars væri óskaplega dæmigert að blessaður pósturinn myndi stinga launaseðlinum mínum inn um lúguna hjá fólkinu á efri hæðinni (þó hann sé mjög greinilega merktur kjallari) sem þýðir að ég fæ seðilinn ekki í hendurnar fyrr en í fyrsta lagi á miðvikudag af því þau eru ekki á landinu! Jæja, ég ætla að fara að vera leiðinleg við einhvern í vinnunni fyrst það er leiðindadagur.
föstudagur, október 01, 2004
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli