föstudagur, október 22, 2004

Aftur á hótel mömmu

Ég er að flytja aftur á hótel mömmu. Við Andri ætlum að reyna að spara smá pening vegna íbúðarkaupanna og flytjast inn á foreldra mína þangað til við fáum afhent. Ætlum bara að byrja að pakka um helgina. Þess vegna fórum við skötuhjúin í Húsasmiðjuna í gær og ætluðum að kaupa okkur pappakassa. Hugsuðum sem svo að það væri ágætt að kaupa þá bara, þá væru þeir heilir og við gætum ráðið stærðinni og þeir yrðu þá líka allir jafnstórir. Hættum snarlega við þegar við sáum verðið á þeim. 269 krónur fyrir einn pappakassa!!! Og það var sko ekki stærsta týpan. Ákváðum að fara bara í bónus og fá ókeypis ljóta og misstóra kassa.
Svo er ég að fara að hitta hópinn sem ég er að vinna verkefni með í skólanum. Versti hlutinn er að ég hef hreinlega ekki haft tíma í að gera neitt (og þá meina ég alls ekki neitt) frá því við hittumst síðast fyrir heilum tveimur vikum. Finnst hálfömurlegt að mæta með ekkert í höndunum en verð bara að lofa að gera rosalega mikið á næstunni. Það eru nú alveg 3 vikur í skiladag.
Og fyrir þá sem hafa áhuga þá er rauðhærði guttinn hennar Gunnhildar kominn með heimasíðu eins og öllum íslenskum ungbörnum sæmir sem má sjá hér.

Engin ummæli: