Ég finn mig knúna til að tjá mig um orðið bjargráður þar sem ég er búin að skrifa það ca. tíu sinnum í morgun. Mér finnst þetta nefnilega svo flott orð. Eini gallinn er að það er ekki mjög lýsandi fyrir þennan hlut og því erfitt að fatta hvað þetta er (ef maður veit það ekki fyrir ... en ef maður veit það þarf maður hvort eð er ekkert að fatta). Svo að þið vitið það þá er bjargráður íslenska heitið yfir implantble cardiovorter defibrillator sem er tæki sem er grætt í fólk með lífshættulegar hjartsláttartruflanir og stuðar hjartað átómatískt í gang ef það missir úr takt eða slær óreglulega. Þetta var föstudagsfræðsla Ragnheiðar!
föstudagur, október 29, 2004
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Jamms, hef séð svona tæki bila.... ekkert smá fyndið þegar þau fara að stað og stuða reglulega án ástæðu, en þó má ekki hlæja af því... andri klandri
tjáh,hvar værum við án þín gúrkan mín?? Bjargráður hljómar samt eins og gamalt íslenskt nafn á einhverjum bóndaskarfi...
Minnir mig líka alltaf á lögreglustjórann í Músabæ, en hann heitir víst Bjargfastur.
Hihi, ertu ekki bara komin með prýðis nafn á son...eða hvað - fyrst þér finnst þetta svona flott orð?!! Hehe:)
Katla
Skrifa ummæli