þriðjudagur, október 05, 2004

Lyftur

Ég hrósaði happi í morgun þegar ég kom móð og másandi upp tröppurnar á sjöundu hæð í vinnunni. Lyftan var nefnilega föst og inni í henni fullt af fólki og póstvagn. Sko ... það borgar sig að labba upp þessar tröppur!
Annars er Gústi bróðir hans Andra farinn að blogga og ég setti krækju hér til hliðar á bloggið hans. Þá getið þið fylgst með því hvað 15 ára unglingur tekur sér fyrir hendur í kennaraverkfallinu. Hins vegar hefur hún Maggapagga ekki bloggað neitt í þrjá mánuði og þar með fer krækjan á hennar blogg út af síðunni minni.

Engin ummæli: