þriðjudagur, október 19, 2004

Íbúðamál

Gengur eitthvað illa að publisha þennan póst og tapaði öllu sem ég skrifaði áðan svo að ég reyni bara aftur.
Við erum semsagt búin að fá gagntilboð vegna íbúðarinnar og ætlum að öllum líkindum að samþykkja það. Eigum þá bara eftir að græja lánin svo við getum nú verið almennilegir, skuldum vafðir Íslendingar. Ef að allt gengur vel verðum við farin að læðast framhjá apótekum og burðast með stiga út í búð eins og sönnum Hafnfirðingum sæmir fljótlega eftir áramótin.

Engin ummæli: