laugardagur, október 02, 2004

(Nesti og) nýir skór

Það liggur töluvert betur á mér í dag en í gær. Svaf út í morgun, sem var langþráð, fór svo í Smáralind með Andra og við gátum barasta bæði keypt okkur nýja skó og það í sömu búðinni. Ég tók nefnilega eftir því að skórnir, sem lengi hafa verið uppáhaldsskórnir mínir, eru svo úrsérgengnir að þeir eru hvorki þægilegir né flottir lengur. Bara sjúskaðir, of víðir og þar að auki með götum í botninum þar sem smásteinar geta safnast fyrir, en það er nú sennilega ekkert skrítið miðað við hvað ég hef notað þá ótrúlega mikið. En nú á ég þessa líka fínu og þægilegu skó sem ganga við allt og í öllum veðrum.
Svo byrjaði idolið náttúrulega í gær. Ég dreif mig til mömmu og pabba í gær þar sem þau kaupa áskrift að Stöð 2 en ekki ég og þar með neyddust þau til að horfa með mér. Pabbi var mjög ánægður með að Simmi og Jói skyldu vera sýndir bursta tennurnar í byrjun þáttarins en eftir það atriði var áhuginn ekki meiri en svo að hann sofnaði. Mamma entist hins vegar allan þáttinn með mér. Ég verð nú samt að segja það að lopinn er ansi langt teygður í þessum þáttum og öll framvinda afar hæg. Það væri sennilega hægt að stytta seríuna um helming án vandkvæða ... en það þýddi að sjálfsögðu minni auglýsingatekjur svo ég verð víst bara að vera þolinmóð. Góði Guð, gefðu mér þolinmæði og ég vil fá hana strax!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

......Varstu búin að henda þeim gömlu??
Ég er þreyttur, enda klukkan að verða 05:00. zZzZZ

andri

Ragnheidur sagði...

Svona flatbotna, svartir með leðri og svo er stór teygja framan á þeim ... æji erfitt að lýsa þeim.