Fór í leikhúsið í gær með mömmu og Helgu Dögg að sjá Rómeó og Júlíu. Búin að vera á leiðinni að panta mér miða í mörg ár en loksins tókst mér að koma mér. Er afskaplega fegin að hafa loksins farið, þetta er sýning sem ég hefði ekki viljað missa af. Mjög skemmtileg!
Ég skil svo ekki þessa áráttu í fólki að vera að halda upp á afmælin sín eða halda einhver annars konar partý þær helgar sem ég er að vinna. Er boðið í afmæli og innflutningspartý, sem eru bæði núna á laugardaginn og er að fara að vinna um helgina auk þess að þurfa að drífa í eins og einu verkefni sem ég er ekki byrjuð á ennþá þrátt fyrir fögur fyriheit. Um síðustu helgi þegar ég var ekkert að vinna og ekkert sérstakt sem lá fyrir í skólanum bauð enginn mér neitt! Fussumsvei!!!
föstudagur, október 08, 2004
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli