Mig grunar að ég sé að fullorðnast. Í fyrsta lagi er sunnudagsmorgunn núna og ég er ekki að vinna, fór frekar seint að sofa í gær en vaknaði samt fyrir átta í morgun. Í öðru lagi er langt liðið á október og ég hef ekki fundið votta fyrir mínum árlega októberjólaspenningi. Var eiginlega ekkert farin að hugsa út í að það kæmu jól þetta árið fyrr en í gær þegar mamma gaf mér Georg Jensen aðventukerti.
Fór til Önnu í gærkvöldi í fyrsta saumaklúbb gamla ballerínuhópsins míns. Það var mjög gaman þótt fáar hafi komist. Nú er bara að sjá hvort þetta verði ekki reglulegur viðburður og þar með almennilegur saumó. Sennilega er það þriðja merkið um að ég sé að fullorðnast að vera komin í saumaklúbb ... og líka það gleðilegasta.
sunnudagur, október 17, 2004
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli