Jæja, þá er nú boltinn farinn að rúlla. Við ákváðum í gærkvöldi að skella okkur að skoða íbúð í Hafnarfirði sem okkur leist svona líka vel á að við erum búin að gera tilboð í hana. Ætluðum eiginlega ekkert að fara að skoða þessa íbúð og vorum ekkert sérlega spennt fyrir henni en ákváðum nú samt að drífa okkur og viti menn ... frábær íbúð. Reyndar alveg lengst í Hafnarfirði en allt annað við hana er svo frábært að það er allt í lagi. Það segja líka allir að það sé svo gott að búa í Hafnarfirði. Kemur í ljós á morgun hvort tilboðinu verði tekið.
fimmtudagur, október 14, 2004
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli