mánudagur, október 04, 2004

Af hverju getur fólk ekki svarað í símann?

Sendi fyrirspurn til fasteignasölu í gær um íbúð sem okkur langar að skoða. Og af því ég veit hvað Andra finnst ógeðslega gaman að tala við fasteignasala setti ég auðvitað símanúmerið hans í staðinn fyrir mitt í viðeigandi reit. Eða gerði ég það kannski vegna þess að ég kann ekki mitt eigið símanúmer og rugla því alltaf saman við Andra-númer? Er nú reyndar svo rugluð að ég hef stundum hringt í mömmu og pabba í staðinn fyrir Dominos þegar ég ætla að panta pizzu! Ástæðan fyrir því er reyndar sú að bæði númerin byrja á 581 .. og þegar það er komið fylgir restin af númerinu hjá mömmu og pabba ósjálfrátt með en ekki sú að ég panti pizzu jafn oft og ég hringi í foreldra mína. En hvað um það ... ég var að tala um eitthvað allt annað ... já, fasteignasala. Fasteignasalinn hringi svo auðvitað í Andra, sem var sofandi, en ég hringdi til baka seinna og fékk þá númerið hjá manninum sem býr í íbúðinni sem okkur langar að skoða. Og ég er búin að marghringja en maðurinn svarar ekki! Hann hefur sennilega engan áhuga á að selja þessa íbúð þar sem hann á ekkert í henni heldur leigir hana og vill ábyggilega ekkert missa hana. Hefur ábyggilega gefið fasteignasölunni upp eitthvað bullsímanúmer svo að það nái aldrei neinn í hann. Nenni ekki að standa í svona veseni!

Engin ummæli: