Já unglingarnir í Breiðholti láta kennaraverkfall ekki stöðva sig í þekkingarleitinni. Á leiðinni heim úr vinnunni í gær tók ég eftir nokkrum áhugasömum náttúrulífsskoðurum á túni við Breiðholtsbrautina að kynna sér gróðurfar á haustdögum. Voru unglingarnir það áhugasamir að þeir voru búnir að taka hvern einasta svepp sem þeir fundu á túninu og setja hann í poka. Hafa vafalaust ætlað að skoða þá nánar heima hjá sér og fletta þeim upp í fræðibókum.
Bið ykkur svo að hugsa fallega til mín milli 9 og 10 í fyrramálið. Þá er ég nefnilega að taka heimapróf í Opinberri stjórnsýslu. Vona að það gangi vel!
miðvikudagur, september 29, 2004
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli