Ég er stöðugt að týna lyklunum mínum í vinnunni. Hef þá í hendinni og hleyp svo eitthvert þar sem ég legg þá frá mér og skil eftir og man svo ekkert hvað ég gerði við þá þegar ég ætla að nota þá. Eða þá að ég set þá í töskuna mína og finn þá ekki þar sama hvað ég leita. Ég held að það sé eitthvað svona lyklagleypihólf í töskum sem gerir það að verkum að maður finnur aldrei lyklana fyrr en maður er búinn að taka allt annað úr töskunni.
Annars er ég með tvo eins lykla sem ég nota í vinnunni, annar gengur að skrifstofunni minni en hinn að skrifstofu yfirmanns míns. Og það bregst ekki að þegar ég ætla að opna aðra hvora skrifstofuna, þá byrja ég alltaf á því að prófa lykilinn sem passar ekki. Hvað er málið með svona 50-50 líkur? Ég hélt að maður ætti nú stundum að hitta á það rétta!
föstudagur, september 17, 2004
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Þetta er þessi blessaða 50% regla.Mjög þekkt í rúmfræðinni sem regla Puntos Pontiesar, sem mætti slá upp sem 2x*350/2-T~8 X 0,45%......Ehhmm ef það eru 50% líkur á að eitthvað heppnist eða sé gert rétt, þá bregst það alltaf í fyrstu tilraun...
Doktor Andri
Skrifa ummæli