Vinna, læra, sofa, vinna, læra, sofa ... þessi þrjú orð lýsa mjög vel síðustu dögum í lífi mínu. Reyndar má aðeins bæta inn í runurnar fyrir föstudag og laugardag: vinna, skoða íbúð, læra, sofa og vinna, læra, fara í afmæli, sofa. Og þetta er dagskráin næstu daga: vinna, læra, survivor, sofa - vinna, læra, sofa o.s.frv. Ástæðan fyrir þessu:
Í fyrsta lagi er ég að fara í heimapróf á fimmtudagsmorguninn. Prófið er aðallega úr frekar þungri bók sem ég er búin að vera að ströglast við að lesa og er kennarinn búinn að tilkynna að í prófinu verið margar spurningar svo að við höfum ekki tíma til að fletta upp í bókinni. Við fáum nákvæmlega klukkutíma til að taka prófið, það læsist kl. 10.
Í öðru lagi er ég búin að taka að mér helgarvaktir sem ritari á 14-G sem er hjarta- og nýrnadeild og var að vinna mína fyrstu helgi núna. Ætla að vera aðra hvora helgi.
Annars erum við Andri búin að skoða tvær íbúðir núna síðustu daga, báðar í Grafarvogi. Okkur leist mun betur á þá sem við skoðuðum seinna en ætlum kannski að líta á eina eða tvær til viðbótar. Svo er bara að drífa sig í greiðslumat og ganga frá dæminu. En eins og staðan er í dag þá gæti vel verið að við myndum gera tilboð í íbúðina sem okkur leist betur á, hún er alveg eins og sniðin utan um okkur. En byrjum nú kannski á greiðslumatinu ...
mánudagur, september 27, 2004
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli