mánudagur, júlí 05, 2004

53 og hálf pylsa

Var að lesa frétt á mbl.is um Japana sem setti heimsmet í pylsuáti og hesthúsaði alls 53 og hálfri pylsu á 12 mínútum. Góður árangur en fyrst hann gat étið svona mikið, af hverju kom hann ekki hálfri pylsu í viðbót niður? Hvers vegna að hætta að borða í miðri pylsu? Þetta er svona svipað og með diet coke, af hverju gátu þeir ekki náð síðustu kaloríunni úr líka? Það er mikið um stórar spurningar í heiminum sem erfitt er að fá svör við.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Jibbbbí, ég var númer eitt að heimsækja ragnheidi á netið...liggaliggalái. andri