sunnudagur, september 19, 2004

Háralvarleg módelstörf

Ég öðlaðist mína fyrstu reynslu sem hármódel í gær. Afar merkileg lífreynsla þar sem ítalskur hárgúrú í hálfsmeterlöngum támjóum skóm klippti á mér hárið fyrir framan lærdómsfúsar íslenskar hárgreiðsludömur. Hann var nú reyndar frekar harðhentur og hafði hárþurrkuna svo nálægt hársverðinum á mér að ég fann til og ég eiginlega veit ekki hvaða flippi hann var á þegar hann blés og greiddi á mér hárið eftir að hafa klippt það. Öll hin módelin voru þannig greidd að þau gætu alveg mætt í vinnu eða skóla með þessa hárgreiðslu. Eins og sjá má hér að neðan átti það ekki fullkomnlega við mig. Í tilefni módelstarfanna setti ég upp Zoolander-svip þegar heim kom og leyfði Andra að taka mynd af mér áður en ég hoppaði í sturtu.

Endilega segið mér hvað ykkur finnst um þessa hárgreiðslu.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Zoolander eat your heart out!!!!!! Hefur Eskimo nokkuð haft samband????
hdb

Ágúst Ingi Kjartansson sagði...

þú ættir að taka þá í icelandic next top hear model ;-)