Var að kíkja á skjöl sem ég hafði gengið mjög samviskusamlega frá í möppu í tiltektinni góðu hjá mér í maí. Vissi meira að segja hvert ég hafði sett þessi skjöl svo tiltektin hefur ekki verið alvond þótt hún hafi komið mér í vanda um daginn. En hausinn minn virðist hafa verið dáldið afslappaður í þessari tiltekt þar sem flest blaðanna voru á hvolfi inni í möppunni. Svo sem ekki mikið mál að snúa möppunni bara á hvolf og lesa þannig en lítur kannski hálffurðulega út.
Heima hjá mér er líka allt á hvolfi, sérstaklega á baðherberginu. Til að komast í sturtuna þarf að smeygja sér fram hjá þvottavél og þurrkara (eins gott að bumban mín er ekki orðin mjög stór), búið að pilla nokkrar flísar af veggnum og bora smá inn í hann með tilheyrandi rykdreifingu um allt, blöndunartæki og lagnir á víð og dreif um íbúðina og í geymslunni er baðkar á hvolfi. Það eru sem sagt framkvæmdir í gangi og ef allt gengur vel verð ég komin með þetta fína baðkar eftir ekki svo langan tíma. Húrra fyrir því!
þriðjudagur, júlí 05, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli