föstudagur, júlí 01, 2005
Myndarskapur
Haldið þið að mín hafi ekki bara farið út í búð í gær og keypt sér garn og prjóna. Ætla að athuga hvort ég ráði ekki við að prjóna eins og eina peysu á Dósóþeus. Svo er gott að vita af tengdamömmu á Selfossi sem gæti prjónað með tánum ef hún vildi og getur aðstoðað mig ef ég lendi í vanda. Byrjaði svo í gær en var orðin dáldið þreytt og komst ekki mikið lengra en að fitja upp. En það er þó eitthvað.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Þvílíkur dugnaður í þér, verður gaman að sjá afraksturinn svo
Skrifa ummæli