... fyrir framan tölvuna. Byrjaði að horfa á The hand that rocks the cradle í sjónvarpinu en fannst það svo ekki vera góð hugmynd svona þegar við Kisa erum bara tvær heima. Klukkan að verða ellefu og aldrei þessu vant er mín langt frá því að vera syfjuð. Ástæðan mjög líklega rúmlega klukkutíma langi lúrinn yfir fréttunum áðan. Og ástæða lúrsins hrikalegur höfuðverkur. En ef ég þekkti ástæðu höfuðverkjarins gæti ég nú sennilega komið í veg fyrir þennan óþverra sem gerir mér lífið leitt reglulega.
Framkvæmdirnar á baðherberginu hafa tekið kipp í dag og í gær. Píparameistarinn og píparadrengurinn gengu frá lögnum í gær og í píparadrengurinn skemmti sér konunglega við að uppgötva dulda múrhæfileika í dag. Ég ákvað að flýja húsið á meðan á þeim ósköpum stóð og þræddi í staðinn útsölur með Önnu. Anna var eins og herforingi inni í Polarn O Pyret og týndi hverja spjörina á fætur annarri inn í mátunarklefann til mín og ég þurfti ekkert að gera annað en að máta. Hún ætti kannski að íhuga að koma sér á framfæri sem svona "shopping assistant".
laugardagur, júlí 09, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Svona eins og Rachel í Friends!
Ég er akkúrat að skoða námsframboðið í útlandinu...ætti kannski að bæta þessu við á listann yfir mögulegt framhaldsnám fyrir mig :)
Anna
Skrifa ummæli