þriðjudagur, júlí 19, 2005

Með báða fætur á gólfinu

Í dag er dagur réttrar líkamsbeitingar og áhersla lögð á að krossleggja ekki fætur í vinnunni. Það er samt hægara sagt en gert því ósjálfrátt er ég búin að krossleggja um leið og ég hætti að einbeita mér að fótunum. En ef mér hættir að vera svona illt í bakinu og bossanum þá er það þess virði að venja sig af þessu. Svo ég þrjóskast við.

Engin ummæli: