föstudagur, júlí 15, 2005

ragnheidur.com

Jæja, eftir ófá símtöl, ótal tölvupósta og útskýringar frá Herði hefur tekist að opna ragnheidur.com aftur eftir smá hlé. Það er reyndar ekkert þar inni ennþá ... en síðan virkar, sem er mikið gleðiefni miðað við vesenið við að flytja eitt lén þar sem hvert fyrirtækið vísar á annað og eitt þeirra ávarpar mig mjög kurteislega dear sir.
Eníveis ... ég er syfjuð í dag. Hildur prímaballerína bauð gamla balletthópnum heim í gærkvöldi sem var mjög skemmtilegt en er líka ástæða þess að ég komst ekki í háttinn fyrir tíu eins og hin litlu börnin.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

jeeeeiiiii... til hamingju að vera komin með lénið í lag.