mánudagur, júlí 11, 2005
Blogg um blogg
Var að koma úr mat þar sem ég hakkaði í mig indverskar pönnukökur sem er eitt af því fáa úr mötuneyti Landspítalans sem er virkilega gott. Fletti Blaðinu á meðan ég borðaði sem ég nenni sjaldnast að lesa og sá þar eins konar dálk sem kallast af netinu. Þar er vitnað í ýmsar bloggsíður Íslendinga og mér fannst frekar merkilegt að hvert einasta blogg sem vitnað var í fjallaði um sjónvarpsþætti eða sjónvarpsdagskrá. Og ég gat nú ekki betur séð en að blaðamenn ættu auðvelt með að finna blogg um sjónvarp en fór svona að velta því fyrir mér hvort að fólk bloggaði almennt mikið um sjónvarp. Sennilega er ekkert skárra að blogga um það að blogga um sjónvarp en ég var nú bara svona að spöklera. Bloggar fólk um sjónvarp af því það er svo stór hluti lífs þess? Eða kannski vegna þess að það er nokkuð "safe" að hafa skoðanir á sjónvarpsefni. Það verður nefnilega enginn mjög reiður þótt þér finnist Kvöldþátturinn hallærislegur.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Hallast að því að þetta sé svona "safe bet" - svo er líka frekar auðvelt að hafa skoðun á sjónvarpsefni og annarri afþreyingu. Maður þarf ekki að hafa háskólagráðu í því - þótt það sé vissulega miklu skemmtilegra að lesa spöklerasjónir þeirra sem eru með háskólapróf í að horfa á sjónvarp (eins og ég);)
úff ... það var svoldið erfitt að lesa þessa færslu hjá þér. ég blogga samt eiginlega aldrei um sjónvarpsþætti... horfi svo lítið á svoleiðis. uss...
Hö
Skrifa ummæli