fimmtudagur, júlí 21, 2005
Gaman, gaman
Ég er glöð í dag með Barry White í útvarpinu. Bað um launahækkun áðan og óskaði líka eftir því að hún gilti aftur í tímann og svarið sem ég fékk var að ég fengi allt sem ég vildi. Það er sennilega gott að biðja um eitthvað þegar yfirmaðurinn er nýkominn úr sumarfríi. Svo er best að snúa sér aftur að vinnunni svo ég komist í sumarfríið mitt.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Habbara sona! Til lukku með kauphækkunina - nú verður hægt að spreða í litla prinsinn ;@) En kuptu þér nú líka eitthvað fínt - þú átt nebbilega alveg eftir að gleyma sjálfri þér eftir að prinsinn fæðist.
Skrifa ummæli